Jæja ! nú kemur ferðasagan frá Svíþjóð...er búin að byrja svona
þrisvar sinnum..annað hvort hef ég hætt eða þetta sem eg hef gert
dottið út .. en núna mun hún koma 
Þriðjudagur ;
Við mættum hress á flugvöllinn hér á Egilsstöðum og flugum til
Reykjavíkur
Ég og Elísa pirruðum manninn fyrir framan
okkur víst eitthvað og sagði so allt í einu ,,Grow up girl !"
.. een þegar við vorum komin til rvk þá fórum við bara með leigubíl
upp í UMFÍ húsið þar sem við gistum
fengum okkur svo smá að
borða og fórum svo bara að sofa.. 
Miðvikudagur ;
Við vöknuðum frekar snemma..fengum okkur að borða og svona,
tókum til og fórum bara á leigubíl útá BSÍ
biðum þar soldið
lengi eftir að við myndum leggja af stað á Keflavíkurflugvöll með
rútu..
vorum mætt soldið tímanlega een það er bara betra..biðum
svo eftir að ÍR- ingarnri kæmu útá flugvöll og fórum svo að
tékka okkur inn og svona
svo var það fríhöfnin ...! það var
ágætt..keypti mér ekkert nema einn stóóran poka af Skolekridt
een svo vorum við komin að gate-inu sem við áttum að fara hjá..og
þá var víst klst seinkun :/ og við máttum valla hreyfa rassinn á
okkur ! rétt fengum að fara á klósettið ...sem betur fer
een svo
var lagt í hann til Svíþjóðar !! vorum í flugvél í 2 og hálfan tíma
sem var allt í lagi..og komum svo til Svíþjóðar e-h um 9 leitið 25
stiga hiti og læti ! fórum sgo bara þar sem við gistum og
komum 12 eða eitthvað svoleiðis.. Allar stelpurnar voru saman í
herbergi og Natalí og Soffía og við gerðum allt tilbúið í
herberginu gátum eitthvað lítið talað þar sem báðir farastjórarnir
voru í herberginu en við reyndum að sofna sem var reyndar mjög
erfitt útaf hitanum !
Fimmtudagur ;
Vöknuðum frekar snemma og það var glampandi
sól og 30-35 stiga hiti
fengum okkur að
borða og svona og gerðum okkur ready fyrir verslunarferð
fórum í
e-ð moll sem var bara mjög fínt ! keypti mér reyndar ekkert mjög
mikið ...en samt eitthvað..vorum þarna mest allan daginn
svo var
bara verið eitthvað úti og svo fundur um kvöldið með Ír-ingum

Föstudagur ;
Vöknuðum á mismundandi tímum og fórum með strætó uppá
völl þar sem við kepptum
ekkert smá flottur völlur ! riiisa stór
! Keppti bara í Langstökki þennan dag og gekk svona ágætlega..var
ekki alveg að ganga að hitta á plankann ..
við vorum alveg til 6
þarna og fórum svo bara heim og gerðum eitthvað og svo fundur um
kvöldi
og farið snemma í háttinn..
Laugadagur ;
Fórum uppá völl ! keppti í 100 m og þrístökki þann daginn og
gekk alveg ágætlega..reyndar með soldið miklar harðsperrur þar sem
ég teygði ekkert eftir föstudaginn..Svo fórum við Sóldís með
ÍR-ingum heim á undan hinum í ÚÍA ..og ætluðum í sturtu og svona en
það endaði nú bara með því að horfa á barnatíman og hann var
væntanlega á sænsku
svo kom allt fólkið og við fórum svo bara í
sturtu og svona og fórum svo út að gera eitthvað og á fund
og
farið snemma að sofa...
Sunnudagur ;
Vaknaði snemma...fórum á Ullevi völlinn góða
og ég keppti í
300 m og hástökki..gekk ágætlega
þetta var bara fínasti
dagur..mjög svipaður hinum keppnisdögunum : vöknuðum - borðuðm-
fórum upp á völl - kepptum - fórum heim - sturta - fengum okkur að
borða - fundur - sofa
nema við fengum að veka pínu lengur þetta
kvöld því keppnin var búin og fengum betra að borða og svona
farið í fótbolta og svona skemmtilegheit !
Mánudagur ;
Farið í Skara sommarland ! það var ekkert smá gaman
Það
var með svona tívolílandi, vatnslandi og einhverju fleiru. Við
fórum í fullt af geeeðveikum rennibrautum, ein var örugglega 80
gráður hét á íslensku ,, Frjálst fall " ekkert sma´löng og
brött..meiddi mig smá í henni..een það var allt í lagi ..svo var
ein sem endaði eins og klósettskál eða eitthvað sem var geeggjuð !
en þetta var allt ekkert sma´skemmtilegt
Svo fórum við líka í
tívolíland og eitthvð fleira ..fórum í svona bát sem var eins og
hvalur og fór niður svona bratta brekku
urðum öll rennandi blaut
aftur :/ fórum í lítinn rússíbana og svona..svo fórum við í
hamstrahjól sem maður átti að hlaupa í..þegar ég fór með Elísu datt
ég og fékk brunasár og eitthvað :') hehe og svo fórum við aftur
næstum öll og duttum flest og Sóldís undir Ásmund
Við vorum
þarna alveg frá 11 - 5 eða eitthvað og svo var bara farið heim og
komið um matartímann
og svo var bara gert eitthvað um kvöldið
og zzzz....
Þriðjudagur ;
Fórum í Liseberg tivolíið
Það var BARA GAMAN !! vá það var
æææði ! Fórum í alla rússíbanana og meira að segja líka
Elísa !
Trérússíbaninn var ekkert smá skemmtilegur og líka
Kanoen sem maður fór 2x á hvolf og ekkert smá hratt allan tíman !
svo fórum við líka í Fallturn og uppskot
það var ekkert smá
gaman,maður var reyndar soldið hræddur að bíða svona lengi uppi og
vita ekkert hvenær maður færi af stað niður en það var ekkert smá
gaman ´
fórum líka í svona tæki sem snýst geggjað mikið í
hringi og fer hátt upp og eitthvað ..var reyndar stoppað útaf
öskrunum í Elísu :') hehe og svo var að sjálfsögðu farið í
draugahúsið sem var ekkert smá flott..samt ekkert svo hræðilegt..en
samt geggjað flott
vorum þarna alveg frá 2 - 11 um kvöldið ! og
ja það má ekki gleyma því að það var alveg GRENJANDI rigning þarna
!! aaaldri verið í svona mikilli rigningu fyrr
en hún hætti í
smá tíma og kom svo aftur og hætti svo alveg
En þetta var samt
alveg frábært þó að þessi rigning hafi verið
svo var bara farið
heim og farið að sofa ...
fráábær dagur !
Miðvikudagur ;
Vaknað - borðað og svo var aftur farið í verslunarferð í
mollið
ég keypti mér meira í þessari ferð en hinni
Svo fórum
við heim og tókum töskurnar útúr herberginu þar sem ALLAR töskur
frá ÚÍA og ÍR voru geymdar og það voru eitthvað um 250 töskur eða
eitthvað !! létum þetta bara fyrir utan húsið og svo var bara
haldið útá flugvöll með rútu
og við biðum í svona klst þangað
til við gátum tékkað okkur inn og farið í gegnum tollinn
fórum
svo bara í fríhöfnina...en allar nema 2 dýrar búðir voru
lokaðar....:/ svo við fórum bara að spila og eitthvað sem var ágætt
og svo var bara flogið til Íslands
það var ágætt flug bara og
komum til Íslands um 11 leitið.. fórum í fríhöfnina keyptum okkur
nammi
fórum svo bara með rútu til Reykjavíkur og með leigubíl
uppí UMFÍ hús sem við gistum í aftur - þar talaði ég soldið í
símann
hehe og fór svo að sofa ..
Fimmtudagur ;
Ég, Sóldís og Elísa fórum í kringluna á meðan hinir fóru í keilu
..
keypti ekkert en Elísa keypti sér dágóóðan slatta ! svo fórum
við upp í UMFÍ hús aftur og fórum útá flugvöll með leigubíl og
vorum komin til Egilsstaða kl hálf 7 sem var frábært ! nema að
þurfa að kveðja allt fólkið :/
Eeeen þetta var frábær ferð !! ætla að stela punktunum hennar
Sóldísar og setja hérna fyrir neðan um skondin atvik úr ferðinni (
er samt búin að breyta smá) 
elísa trúði öllu
sem var sagt og þá meina ég öllu !einu sinni spurði
hún mig útaf e-rju hvort hún ætti bátt ..og ég sagði þá
bara; jáá !ég var lömuð í 3 ár og svo tók gigtin við í vinstri
handlegg og leiddi niður í vísifingur ! elísa trúði þessu
öllu :’D og bara ; ertu að djóka =| ?
og
við sprungum auðvita úr hlátri :’)
svo síðasta daginn var boðið uppá sonna afgangana af matnum og það
var brauð á borðin og ég og Sóldís fengum okkur
..svo kom og Elísa og spurði hvar væri hægt að fá sonna !og hún
fór og fékk sér ..svo sagði ÉG að þetta væri bara fyrir fólk sem
hefði verið með gigt í vinstri hendi sem leiddi niðrí vísifingur og
elísa trúði því eins & öllu :’D ..þannig að hún tók tvo bita og
skirpti þeim báðum útúr sér !og svo byrjuðum við að hlæja þanna á
fullu og hún skildi ekkert í því :’)
þegar elísa og eg vorum að *leika* okkur í rúminu og natalía
kom inn og spurði hvort það væri “alltalltílæj”
?
g-strengarnir hennar natalíu sem flæddu útum allt herbergi ,, voru
gjörsalega allstaðar :’)
"djömmin" hennar Natalíu !
svo hraut Natalía víst svo hátt að það var ekki
svefnfriður (ég varð reyndar ekki vor við það...reyndar var veggur
á milli)
hún var alltaf með rauðan varalit
!
hún einbeitti sér mikið þegar hún gerði sig fína fyrir hössleríið
;D
svo þegar við spurðum hana hvort hún væri að fara að hössla vissi
ekki hvað það var =)
Natalí vildi
endilega að Sóldís myndi skúra herbergið því allt draslið var
víst eftir hana og hún vildi að hún lærði þetta og svo
skúruðum við Elísa svo hún ætlaði að fá Sóldísi heim
til sín til að
kenna henni að skúra :')
Minni á að það eru nokkrar
myndir úr ferðinni komnar..það koma fleiri mjög
fljótlega..
Ef einhver nennti að lesa
þetta allt þá á hann hrós skilið ! 
takk fyrir mig

//Freydís